|
|
27.07.2008 16:01:10 / nanda
Jæja elskurnar mínar loksins skrifa ég litla og netta bloggfærslu ,,, margt hefur drifið á mína daga undanfarnar vikur ,,, bæði gott og strembið ... ég byrjaði sumarfríið á að fá einkirningssótt - varð mikið veik í nokkrar vikur - en það er liðið og að baki hugsa ekki um það meir !  Sérstaklega eftir miðvikudaginn í síðustu viku ,,, Nanda er nefninlega bumbubúahýsir  Ég er nú búin að vita það í langan tíma en vegna veikindanna, hafði ég þó nokkrar áhyggjur - ekki var vitað með fullri vissu hvort svona sýking hefði áhrif á litla ungann ... en sem sagt fórum í 20. vikna sónarinn á miðvikudag (já takk fyrir Nanda hálfnuð) og allt sem skoðað var er eðlilegt ... Nandan grét nánast allan daginn fram að sónarnum ,,, þvílík spenna og kvíði sem hefur safnast upp - en mikill léttir í Nönduhjarta í dag !!! Það sem er framundan hjá mér fyrir utan að vera heilbrigð og frísk á meðgöngu er að fara í blessuð sumarpróf ,,, einhver vinna ,,, flytja ,,, svo eitthvað sé nefnt ! Lífið er fljótt að breytast á gervihnattaöld ... Í upphafi árs var ég einhleyp, nemi í fullri vinnu ... Núna ,,, í sambúð, á von á barni, í leifi frá námi og í 50 % vinnu ... Ég er með meðgönguna á heilanum, allt sem tengist meðgöngu, barnarúmum, barnafötum, nöfnum, þess á milli reyni ég að fá mig til að byrja að læra fyrir sumarprófin, en kýs frekar að lesa Ísfólkið  (var að klára þá fyrstu  ) ! Ég læt þetta duga í bili ,,, takk elsku vinir fyrir hlýju kveðjurnar ! Ykkar Nanda
»
01.07.2008 14:57:58 / nanda
Jæja þá er ég byrjuð að blogga aftur ,,, en í þetta sinn er ég í raun bara að láta vita af mér ... ýmislegt drifið á mína daga frá því ég skrifaði síðast ,,, ég mun kannski stikla á stóru um það seinna ... vonandi líður öllum sem best ,,, í rokinu og kuldanum á Íslandi ,,, mér finnst alltaf kalt hérna heima - meira að segja þegar sólin skín ,,, kærleiksknús til ykkar allra Nanda
»
11.04.2008 16:43:19 / nanda
Jæja það er ansi langt síðan ég skrifaði síðast ,,, ég mun skrifa meira þegar betur stendur á en langaði bara að segja ykkur að Sóleyjarblómið er að koma heim ,,, en ekki í nema 3 vikur ,,, Vera fer að sækja hana og þær verða komnar heim á sunnudag - það er mikil tilhlökkun í hjörtum okkar !!! Skrifa meira seinna elskurnar mínar ,,, Nanda
»
24.03.2008 14:43:13 / nanda
Jæja þá er 19. mars að baki og hann reyndist ekki vera sá gleðidagur sem við vonuðumst eftir ,,, Vera tapaði málinu ! Ótrúlýsanlegar tilfinningar hafa farið í gegnum hugann og hjartað ,,, Hvernig gat þetta gerst ??? Hvernig getur lífið haldið áfram ??? Ég hélt að ef allt myndi fara á versta veg myndum við bara deyja - við gætum ekki afborðið það ,,, en við erum hér enn !!! Mamma og Vera hafa sýnt ótrúlegan styrk og æðruleysi ,,, ég er náttúrulega fljót að vilja bara leggjast í rúmið - en styrkur þeirra er mér mikil hvatning ! Ég get því miður ekki sagt ykkur - hvað stóð í dómnum ,,, Vera hefur ekki treyst sér til að lesa dóminn ,, en það stendur til í dag ,, ég og Mamma höfum hringt í Sóleyjarblómið núna uppá hvern dag ,,, Litla ljósið er búin að glata nánast allri íslensku - en við syngjum fyrir hana og lesum sögur - síðan er Vera á leiðinni út í vikunni ,, þegar ég veit eitthvað meira læt ég ykkur vita ,,, http://youtube.com/watch?v=pBDshBhjOcE&feature=related (þetta er lag sem lýsir nokkuð vel hvernig mér hefur liðið - ég skil ekki hvernig allt er eins, eftir svona mikið áfall) en uppgjöf er ekki í boði ,,, ! baráttan heldur áfram ,,,
»
07.03.2008 13:07:30 / nanda
Riva Shane er orðin vinkona mín ,,,, ég minnist unglingsára minna þegar ég flýtti mér heim úr mr til að horfa á guiding light ,, nú í veikindum mínum var það tilviljun ein sem réð því að leiðarljós varð á vegi mínum aftur eftir margra ára aðskilnað ,,, ég þurfti ekki nema hálfan þátt til að komast inní þrusu spennandi atburðarrás ! Hvað gerist í dag, verður Riva Shane ákærð fyrir morð - hún er fyrrum æskuást Joshua, sem hún svo giftist en skildi svo við, en þau ætla að giftast aftur ef Josh nær að skilja við núverandi konu sína sem vill ekki skilja við hann. HEHEHEHE ÞETTA ER SNILLD !!! Fyrir utan Jesú Krist er Guilding light mitt leiðarljós í veikindum mínum ,,, hlakka til síðdegisþáttarins míns ,,,  sannköllaður menningarmoli í þáttagerð !  Af mér er það að frétta eftir miklar rannsóknir á þriðjudag ,,, er ég í veikindaleyfi í tvær vikur til viðbótar ,,, það var aukið við mig hjartalyfjum og ég er með slæman "bronkítis", er komin á púst við því ,,, ég er frekar lúin ,, enda sagði hjartalæknirinn minn blessaður sem er með eindæmum samviskusamur og góður læknir - að það væri ekki skrítið að ég væri þreytt því með svona hjartslátt er eins og ég sé alltaf að hlaupa ,,, en með hjálp Guðs og góðra manna líður mér betur, hjartað slær hægar, hóstinn og andardráttur betri - sálin sveiflótt en ekki alslæm ,,, Knús til ykkar allra ,,, ykkar Nanda
»
03.03.2008 17:51:23 / nanda
 Vann tvo miða til Parísar á núinu ,,, steingleymdi að segja ykkur frá því ! Ég veit ekki hvernig það verður þarf að fara fyrir 1. apríl en þetta mun nýtast í fjölskyldunni ,,, nú fer að styttast í að Sóleyjarblómið kemur heim  19. mars !!! Ég fór í skoðun á slysó í morgun ,,, allt er við það sama - hraður hjartsláttur, brak í lunga, móð og másandi ,,, en ég er samt sem áður betri ekki eins hraður hjartsláttur og hóstinn er skárri ! Ég er mjög þreytt en sálin er í fínu formi og andlega er ég sterk sem skiptir miklu máli ! Fer svo til hjartalæknisins á morgun ! Jæja elskurnar mínar ,,, sendi ykkur góða strauma og fullt af kærleika ! Hlakka svo til að verða frísk ! Ætla að gera svo margt en samt allt í rólegheitum ,,, fékk appelsínugult spjald ! Þakka fyrir að það var ekki rautt ! Flýtið ykkur hægt elskurnar mínar ! Ykkar Nanda
»
02.03.2008 21:35:47 / nanda
Hæ elskurnar mínar ! Það hefur nú gengið á ýmsu hjá henni Nöndu ,,, eftir að hafa farið á tvennskonar sýklalyf og heilsan varð ekkert betri - var mér ráðlagt af góðri konur að fara á bráðamóttökuna sem og ég gerði. Teknar voru myndir af lungum, teknar blóðprufur en ekkert kom í ljós sem sýndi lungnabólgu en samt sem áður heyrðist í lungunum við hlustun eins og um lungnabólgu væri að ræða. Þannig ég var send heim ,,, daginn eftir var ég ekki orðin betri ,,, var móð, hóstaði, hiti, hraður hjartsláttur ,,, þannig ég fór aftur uppeftir eftir að mamma talaði við lækni á deildinni - ég komst flótt að ! Ég var lögð inn um nóttina því þeir héldu kannski að ég væri með blóðtappa í lunganu ... en svo er Guði fyrir að þakka að svo reyndist ekki vera ,,, en ég var enn með hraðan hjartslátt og með vatn í lungum - ég fékk lyf til að reyna að losa lungum við vatnið og hjartalyf til að hægja á hjartanu og að svo búnu send heim ! En ég fer aftur á morgun í skoðun og svo til hjartalæknis á þriðjudag ,,, Óvissan sem hefur fylgt þessum veikindum mínum hefur styrkt mig í þeirri fullvissu að Guð víkur aldrei frá mér ! Ég hef mætt mínum æðrimætti á undursamlegan hátt, í fólki sem hefur reynst mér vel, í styrk, æðruleysi og friði ! Ég er bjartsýn, í fullvissunni ! Þetta er lífsreynsla sem ég mun búa að og nýta mér til framdráttar - ég sé lífið í öðru ljósi ! Óttinn sem heltók mig í óvissunni - hræðasan við að vera tengdur við hjartalínurit með súrefni - færði Guð nær mér eða færði mig nær Guði - Guð er alltaf til staðar og víkur aldrei frá okkur ,,,, en kannski erum við ekki eins meðvituð um nálægð Hans! "Allt megna ég fyrir hjálp Hans sem mig styrkan gjörir" Ég bið að heilsa í bili ,,, lífið verður dýrmætar og fallegra við svona lífsreynslu ,,, leifi ykkur að fylgjast með ,,, ykkar bjartsýna Nanda
»
26.02.2008 15:29:59 / nanda
Elskurnar mínar nú fer að styttast í jólin ,,, hlakka mikið til jólanna ,,, þið haldið kannski að ég sé með hita og óráði það má vel vera ! en tilhlökkun er alltaf góð  sendi ykkur dásamlegt lag ,,, sem minnir okkur á jólin !  Ég ætla bara að láta mér líða eins og jólin séu að nálgast ,,, gleði gleði gleði ,,, hátið Frelsarns eru alla daga hjá Nöndu Knús til ykkar allra ,,, ykkar Nönds ps. æi get ekki límt linkinn en lagið heitir River - Joni Michell (youtubið það)
»
26.02.2008 10:12:17 / nanda
Fór til læknis í gær ,,, þurfti að bíða í klukkutíma ,,, var orðin svolítið geðvond og farin að ímynda mér að veikindin væru bara ímyndum ein og ég væri nú meiri dramadrottningin ! Eftir klukkutíma bið hitti ég svo lækni ,,, þá kom það í ljós að ekki hafði tekist að lækna lungnabólguna - þannig ég er enn með lungnabólgu ! Læknirinn skipti um lyf, síðan á ég að koma aftur eftir vikur ! Ímyndun var það sem sagt ekki !!! Nú er ég búin að hósta í rúma viku ,,, en ekki er það að sjá á maganum mínum, hélt kannski að ég færi að nálgast þvottbrettið ! Ég sveiflast á milli þess að vera bjartsýn og þess að grenja ,,, er á stundum hroðalega geðvond ,,, en ætla að einbeita mér að þakklæti ,,, þetta gæti verið verra ! Bið að heilsa í bili - í Guðsfriði Nanda
»
25.02.2008 14:07:32 / nanda
Hæ elskurnar mín ,,, Af mér er nú svo sem lítið að frétta ,,, varð svo óheppin að veikjast og fá lungnabólgu í framhaldi af því - fór á lyf, en heilsuna hef ég ekki endurheimt að fullu og er í raun frekar slæm af hósta enn. Fer aftur til læknis í dag ,,, Ég hef svo sem ekki verið þekkt fyrir að vera iðjuleysingi en þessa dagana er ekki um annað að ræða ... en Nöndu líður ekki vel ! Þetta sest svolítið á sálina ,,, hefði átt að skila kynningu í síðustu viku og svo á ég að fara í próf á fimmtudag í minni heitt elskuðu forngrísku ! Ég tala nú ekki um kirkjuna, þar er mikið um að vera þessa dagana, en þau ráða nú kannski fram úr því án mín ! Það er ekki auðvelt hlutskipti að finnast maður vera ómissandi ,,, Hvað ætli Guð sé að kenna mér núna ? Eitt er víst að ég mun ekki leggjast í kör þó svo að hlutirnir séu ekki eins og ég myndi kjósa að hafa þá ! Ég er þakklát fyrir að hlutirnir eru ekki verri og ég hef fengið að finna fyrir nálægð Guðs í þessum veikindum mínum ! Allt hefur sinn tíma ! Ég ætla að rækta bænina, þakka Guði fyrir að vera með mér öllum stundum - hugga mig og hughreista ,,, ég er ekki frá því að eftir þessi bloggskrif sé ég bara nokkuð bjartsýn ! Allt sem ég ætti að vera gera, sem ég ætlaði að vera búin að gera ,,, bíður betri tíma ,,, þegar Guð og góðir læknar hafa hjálpað mér að ná heilsu á ný ! Með bæn um blessun ykkar og mér til handa ,,, ykkar Nanda
»
11.02.2008 15:11:44 / nanda
Vera var að hringja ,,, þetta var að klárast hjá dómaranum ,,, hún var svo fegin ,,, úfff heyrðist í henni !!! Hún sagði ekki mikið - en hún var ánægð með lögfræðinginn sinn ! Það verður ekki fyrr en 19. mars sem dómur verður birtur !!! SIGUR SIGUR SIGUR skrifa meira seinna þegar ég fæ nýjar fréttir - Vera var að reyna að ná tali af pabba Sóleyjar til að sækja hana í skólann ,,, en hún hefur ekki enn fengið að sjá þann skóla sem hún er í ,,, bless í bili ykkar Nanda
»
28.01.2008 09:48:48 / nanda
Helgin búin ,,, átti dásamlega helgi ! Helgin mín er reyndar aðeins öðruvísi en fólk á að venjast því ég er oftast í fríi á mánudögum ,,, þannig það er enn helgi hjá mér - en á móti vinn ég laugardaga og sunnudaga ,,, nema í gær var tekin sú ákvörðun að aflýsa messunni enda veðrið brjálað ! ég lenti meira segja í því að að fjúka með vindinum eins og fis, þannig að þá vitum við að það var ROK - hálkan hjálpaði auðvitað ekki né fínu skórnir mínir ,,, Mamma litla er búin að vera lasin, en er að hressast ! Guði sé lof ! Vera er svo dugleg vinnur og vinnur og vinnur ,,, ég fór á föstudaginn í þetta líka fína útgáfuteiti vegna útgáfu Nýs Lífs - fyrsta tölublaðið eftir breytingu ! Æðislega flott blað ! Það er enn verið að vinna í málinu á fullu ! Karlinn er með endalaust vesen ! Heldur því fram að Sóley sé í sértrúar leikskóla hér heima sem er aðeins fyrir stelpur og að við séum á móti karlmönnum, og ölum á karlhatri ! En Sóleyjarbarnið er bara á hjallastefnu leikskólanum Ós ! Elsku vinir ég bið ykkur, að minnast Sóleyjar í bænum ykkar og hugsa til hennar ! Sjá hana fyrir ykkur komna heim til mömmunnar sinnar ! Nú fer þetta að styttast ,,, eigi síðar en í mars !!! Knús til ykkar allra ,,, má sá Guð sem ég trúi á og veit að víkur aldrei frá mér varðveita ykkur og blessa ykkar Nanda
»
18.01.2008 12:21:16 / nanda
Halló elskurnar mín ! það er nú ár og öld síðan ég skrifaði síðast ,,, allt er komið á fullt á öllum vígstöðvum! Skólinn, vinnan, söngskólinn! Þannig að Nandan hefur svolítið mikið að gera - en sálin er á sínum stað og hjartað slær ! Elsku litla Sóley okkar er enn í Frakklandi, ég treysti Guði fyrir henni! Nú bíðum við bara næstu dagsetningu og það er 11. febrúar og þá á málið að vera tekið í dóm - og við bíðum eftir niðurstöðu í 2-4 vikur ! Þá kemur Sóleyjarblómið heim ! Í öllum aðstæðum er mikilvægt fyrir mig að halda mig fast í þann sem allt veit og skilur, þann sem huggar og hughreystir. Bænin er eins og kútur, en Guð sér til þess að ég nái alltaf til botns og drukkni ekki ! Elskurnar mínar - ég hitti ykkur allt of sjaldan en hugur minn er oft hjá ykkur ! Ég treyti Guði fyrir ykkur ! Nanda elskar ykkur og Guð líka ,,, knússs ykkar Nanda 
»
02.01.2008 14:14:56 / nanda
»
27.12.2007 20:35:28 / nanda
Hlutirnir breytast hratt á gervihnattaöld ,,, mamma mín fer með Veru minni út á morgun ! Ég er aldrei ein ,,, á góða að ! búið að bjóða mér hingað og þangað og út um allt ! Guð er aldrei eins nærri eins og á stundum sem þessum ! Mér var kennt það, af góðri konu að hugsa um hátíðirnar sem ekki eitthvað niðurnjörvað - hugsa út fyrir kassan! Auðvitað hefði ég kosið að eyða áramótunum með kerlingunum sem ég elska mest í öllum heiminum ! En það er ekki ófrávíkjanleg regla ,,, ég bið til Guðs um að þær muni eiga góðan tíma og mér líður betur í hjartanu með það að Vera fer ekki ein ! Hún hefði auðvitað ekki verið ein ,,, englaher Guðs vakir yfir henni stöðugt og munu gera það ! En það er gott að akkerið okkar hér, hún mamma jarðýtan með meiru fari með henni ! Hangikjötið mun svo bíða þar til þær koma heim ,,, Verð í bandi elsku hjartans vinir ! Megi englar Guðs vaka yfir ykkur öllum og hugsum jákvætt til komandi árs, þökkum það liðna ! ykkar Nanda
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Heimsóknir
Í dag: 7 Alls: 12787
|